top of page
received_1755143928342373.jpeg

ALLSKONAR SKEMMTANIR

Búum til gott gigg saman

Ingvar (Byssi) er skemmtikraftur með margra ára reynslu sem elskar að veislustýra og skemmta í brúðkaupum, árshátíðum, þorrablótum, jólahlaðborðum, stórafmælum og allskonar skemmtikvöldum. Vantar enn meira fjör í afmælið, útskriftina eða starfsmannagleðina þar sem afbragðs uppistand eða jafnvel truflað trúbador tvíeyki bjargar málunum? Viltu halda bingó, pub quiz eða happdrætti og fá skemmtilegan stemmara með því? Viltu uppistand í hádeginu hjá þinni deild eða í þínu fyrirtæki? Vantar kynni fyrir söngkeppni, íþróttaleik eða annan skemmtilegan viðburð? Þú finnur skemmtikraftinn þinn hér.

Skemmtikrafturinn er klár í stór gigg sem og smá - til í allskonar skemmtilegheit. Vertu í sambandi og við búum til gott gigg - saman.

byssiskemmtikraftur@gmail.com

Home: Welcome
received_357190919987943.jpeg

„Fyrir suma eru ákveðnir hlutir bara eðlislægir. Ingvar Örn (Byssi) er frábær veislustjóri og hefur oft hjálpað okkur Fjölnismönnum á góðum stundum. Ég get alltaf mælt með Ingvari Erni.”
Jón Karl Ólafsson


“Mæli hiklaust með þessum meistara! Atvinnumaður fram í fingurgóma, frá fyrsta fundi þar til síðustu ræðu lauk var hann frábær! Byssi skipulagði brúðkaupsveisluna alveg rosalega vel og sá til þess að við hjónakornin þyrftum ekki að hafa áhyggjur af neinu, hvort sem það voru gömlu frænkurnar eða fullu vinirnir þá var hann einn sá allra besti í hvaða aðstæðum sem var. Hann fullkomnaði daginn okkar með fyndnu uppistandi og þetta var bara geggjað!”

Kristín Edda Sigurðardóttir ánægð brúður


"Ég leitaði til Byssa því ég vildi prófa eitthvað nýtt og öðruvísi. Hann stóð svo sannarlega undir því með nýja rödd í uppistandinu og gerði okkar veislu enn betri. Mæli hiklaust með honum sem uppistandara og veislustjóra.”
Guðmundur Lúðvík Gunnarsson

Home: Testimonial

MÖGULEGAR SKEMMTANIR

VÍÐTÆK REYNSLA

Þessi tiltekni skemmtikraftur hefur veislustýrt/skipulagt/skemmt/kynnt á ýmsum stórum viðburðum í gegnum tíðina og má þar nefna: Írska daga á Akranesi, landsleiki Íslands í handbolta, úrslitahelgar Handknattleikssambands Íslands, stóra íþróttaleiki í sjónvarpi, árshátíðir fyrirtækja erlendis og hérlendis og má þar nefna: Annata, Lýsingu, Skeljung, íþróttafræðinema á Laugarvatni ofl., markaðshelgin í Bolungarvík, Þorrablót og starfsmannagleði Deloitte, Starfsmannagleði Mílu, Þorrablót Grafarvogs, lokahóf Mýrarboltans, lokahóf margra þróttafélaga (t.d. Selfoss, Víkingur Ólafsvík, KV, Vestri) Villibráðakvöld Fylkis, söngkeppnir, ýmis herra- og konukvöld ásamt fjölda annara viðburða.

 

Untitled

EINKASAMKVÆMI

Minni hópar og einstaklingar mega endilega hafa samband fyrir sinn viðburð. Fátt betra en gott partý 🎉 Við ákveðin tilefni geta Byssi og Göss mætt sem trúbador tvíeyki.

received_1709004489545162.jpeg

ÞAKKLÆTI

Það sem gefur mér mest er að fá að gleðja fólk þegar það fagnar lífinu með sínum nánustu.

Untitled

GLAÐUR FORSETI

Alltaf heiður að fá að gleðja forseta Íslands.

IMG_20231015_203824_668.jpg
Home: Services
20230921_231452~2.jpg

"The way to get started is to quit talking and begin doing."

Walt Disney

Home: Quote
Microphone

FULLA FERÐ

Allt upp á 10

Fullkomnun og innrömmun veislu eða viðburðar er eitthvað sem Byssi leitast eftir í hvert sinn. Gerum þetta saman.
📸 Kristján Orri - Mummi Lú

Home: Feature
bottom of page